Kæru félagar,
Ég hef ákveðið gefa kost á mér til embættis forseta Alþýðusambands Íslands á 47. þingi sem haldið verður dagana 14.-16. október 2026.
Undanfarin 110 ár hefur Alþýðusamband Íslands gegnt lykilhlutverki sem samvinnuvettvangur stærsta hluta verkalýðshreyfingarinnar. Sigrarnir sem hafa unnist í gegnum tíðina eru margir og mikilvægir en baráttan heldur stöðugt áfram.
Verkefni Alþýðusambandsins og verkalýðshreyfingarinnar almennt eru ærin framundan. Sótt er að verkalýðsfélögum bæði hér heima og erlendis. Nýrri tækni og gervigreind er markvisst beitt gegn hagsmunum launafólks. Framandi miðlunarumhverfi gerir launafólki erfitt um vik að nálgast réttar upplýsingar og vinna með markvissum hætti að sínum baráttumálum.
Ákvarðanir á þeirri vegferð sem ASÍ stendur frammi fyrir eru margar og erfiðar. Þær treysti ég mér til að takast á við með farsælum hætti.
Mér rennur blóðið til skyldunnar nú þegar ég skynja sterkt ákall um að ASÍ beiti sér af auknum þunga sem helsta afl breytinga og framfara í íslensku samfélagi. Tímabært er að uppfæra baráttuna og laga hana að þeim miklu áskorunum sem launafólk stendur frammi fyrir.
Ég trúi á sterkt og framsækið Alþýðusamband sem þjónustar aðildarfélögin með öflugum hætti. Ég vil sjá Alþýðusamband sem getur verið vopnabúr félaganna þegar á reynir en sinnir á sama tíma mikilvægustu hagsmunagæslu íslensks samfélags. Hagsmunagæslu launafólks.
Samleið mín með verkalýðshreyfingunni er orðin drjúg. Bæði hef ég gegnt trúnaðarstörfum og starfað innan hreyfingarinnar á fleiri en einum vettvangi undanfarin ár. Þar af starfaði ég fyrir ASÍ í um 6 ár. Fyrir það hef ég starfað á almennum vinnumarkaði alla mína starfsævi í fjölbreyttum störfum.
Með þá reynslu í farteskinu tel ég mig bera kennsl á hvar má bæta vegferð Alþýðusambandsins. Þeirri vinnu vil ég taka þátt í og þá vinnu vil ég leiða.
Ég hlakka til að mæta félögum mínum á 47. þingi ASÍ. Þar ákveðum við saman framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu.
Arnaldur Grétarsson


Færðu inn athugasemd