Í hnotskurn
Samleið mín með verkalýðshreyfingunni er orðin drjúg. Ég hef starfað alla mína starfsævi á almennum vinnumarkaði. Um tíma gegndi ég hlutverki trúnaðarmanns á vinnustað sem gekk í gegnum örar breytingar og ég þekki því á eigin skinni hversu flókið það getur verið að tryggja rétta framkvæmd þegar kemur að réttindum og kjörum fólks. Í sex ár vann ég við miðlun hjá Alþýðusambandi Íslands með þá hugsjón að fullur árangur af réttindabaráttu launafólks náist aldrei nema með öflugri og hnitmiðaðri miðlun upplýsinga. Þar þarf þekking á sögunni að haldast í hendur við skilning á nútíðinni og sýn á framtíðina.
Ég þekki innviði Alþýðusambandsins, hæfnina og tækifærin sem búa innan hreyfingarinnar, slagkraftinn og þekkinguna, en líka gallana. Vinnumarkaður tekur nú örum breytingum og stefnur og straumar í efnahagsmálum heimsins eru launafólki óhagstæð. Að of miklu leyti er verkalýðshreyfingin í vörn gegn niðurbroti á réttindum fólks og það er tímabært að snúa vörn í sókn. Ég vil leiða Alþýðusamband Íslands inn í nýja tíma, þar sem framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu er ákvörðuð af vinnandi fólki, ekki af peningaöflum eða sérhagsmunum.
Persónulega hliðin
Ég er fæddur og uppalinn í Kópavogi en hef lengst af búið í Reykjavík. Eiginkona mín heitir Auður Ástráðsdóttir og við eigum fjögur börn og einn hund. Það er því alltaf í nógu að snúast og þegar ég er ekki í vinnunni nýt ég mín best með fjölskyldunni og við að sinna ógnarmörgum áhugamálum mínum og barnanna. Í hjáverkum reyni ég að sinna listsköpum og skapandi skrifum. Ég hef bæði málað, haldið einka- og samsýningar auk þess sem ég hef komið að því að reka lítið gallerí. Ég skrifa og grínast mikið með samverkamanni mínum Ara Eldjárn og hef tekið þátt í árlegri sýningu hans Áramótaskop. Ég er menntaður mannfræðingur frá Háskóla Íslands og lagði einnig stund á nám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst.
