Uppfærum ASÍ til móts við nýja tíma

Kröftug hagsmunagæsla launafólks – tökum pláss í umræðunni!

ASÍ á að vera óhrætt við að tala máli launafólks hátt og skýrt. Enginn annar gerir það. Á meðan sérhagsmunaöfl stunda grímulausa hagsmunagæslu, verður ASÍ að vera mótvægi í þágu félagsfólks aðildarfélaganna. ASÍ hefur sérþekkingu og leiðir til að sinna þessari mikilvægustu hagsmunagæslu íslensks samfélags af meiri festu.

Virkt samráð milli félaganna – hlustum á félögin og styðjum þau með ráði og dáð

Félögin eru mörg og þarfir þeirra misjafnar. Í samtölum mínum um land allt heyri ég helst ákall um meira samráð svo betur sé hægt að mæta félögunum þar sem þau standa.

ASÍ varð ekki til til að halda utan um ferla – það varð til fyrir félögin

Tökum stjórn á ferðinni inn í framtíðina – ögrum kerfinu – náum stjórn á vinnumarkaðnum

Við horfum fram á róttækari og hraðari breytingar á vinnumarkaði á næstu árum en við höfum orðið vitni að áður. Þessar breytingar eru þegar farnar að lenda á okkur. Hreyfingin á að mæta þessum breytingum og taka forystu um sýn á vinnumarkaðinn.

Við erum vinnumarkaðurinn – við eigum vinnumarkaðinn

Við ákveðum sjálf framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu

Færðu inn athugasemd