1. Kröftug hagsmunagæsla í þágu launafólks
Eitt allra mikilvægasta hlutverk ASÍ er að sinna hagsmunagæslu í þágu launafólks. Sagan er full af dæmum um vel heppnaða hagsmunagæslu sem hefur verið grunnurinn að lífsgæðum og velferð vinnandi fólks. En það eru líka ótal tækifæri sem hafa farið forgörðum. Um allan heim er þrengt að réttindum og kjörum launafólks og efnahagspólítik samtímans er á meira eða minna keyrð á forsendum þeirra allra ríkustu. Íslensk verkalýðshreyfingin, sem er ein sú sterkasta í heimi, hefur alla burði til að verja kjör síns fólks og sækja fram. Það gerum við með kröftugri hagsmunagæslu. ASÍ á að vera verkfærakista aðildarfélaga sinna og undirbyggja stefnu sambandsins með öflugri greiningavinnu, viðburðahaldi og miðlun. ASÍ á að styðja félögin þegar þau mæta áróðursmaskínum SA og Viðskiptaráðs, aðstoða þau við að undirbyggja kröfur sínar í kjaraviðræðum og tryggja að stjórnvöld heyri alltaf að minnsta kosti jafnmikið frá launafólki eins og frá sérhagsmunaöflunum. Þetta er kjarnahlutverk ASÍ og það þarf að stórefla.
2. Öflug þjónusta við aðildarfélög – gata sem gengur í báðar áttir
Samband aðildarfélaga og skrifstofu ASÍ á ekki að vera einstefnugata, heldur að ganga í báðar áttir. Innan skrifstofu ASÍ býr gríðarleg þekking og færni sem þarf að nýta í þágu aðildarfélaganna og félagsfólks þeirra. Að sama skapi þarf þekking og reynsla að skila sér úr starfi félaganna inn í stefnumótun og greiningar ASÍ. Því aðeins með því að tryggja miðlun og skilning í báðar áttir er hægt að ná raunverulegum árangri fyrir almennt launafólk á Íslandi. Forseti sambandsins ber meginábyrgð í þessum efnum og það er á hans ábyrgð að tryggja þetta flæði. Tækifærin sem búa í stærstu heildarsamtökum launafólks, sem spanna bæði landið og miðin, eru gríðarleg – nýtum þau til fullnustu!
3. Tökum stjórn á framtíðinni
Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu er ekki eingöngu yfirskrift á 47. þingi ASÍ, heldur meginviðfangsefni Alþýðusambands Íslands næstu árin. Gríðarlegar breytingar eru að verða á vinnumarkaði og á hreyfingunni dynur látlaus krafa um að gefa eftir réttindi og baráttutæki til þess að þjóna hagsmunum atvinnurekenda og stjórnvalda. Í fyrsta lagi þarf að horfa til baka og skilja þann ávinning sem verkalýðshreyfingin hefur skilað almenningi á Íslandi, hún hreinlega byggði upp lífskjör venjulegs fólks. Í öðru lagi þarf að skilja samtímann og það efnahagslega og pólitíska umhverfi sem við nú lifum og hrærumst í. Í þriðja lagi er verkefnið að reisa kröfur fyrir framtíðina, sem byggja á grunngildum hreyfingarinnar og ófrávíkjanlegum kröfum um almenn lífsgæði launafólks, en þó þannig að þær þjóni vinnandi fólki á þessari öld. Þekking og miðlun eru grundvallarþættir til að ná árangri og þar á ASÍ að vera leiðandi. Stöðnun eða afturhvarf er ekki valkostur, hér þarf áræðni og hug til að takast á við breytingar á vinnumarkaði og samfélagi.
