Hrakningsrímur

V

félagar

eitt sinn hrópuðum vér

öreigar allra landa sameinist

nú sogumst vér inn í allsnægtaþriðjunginn

sem liggur á meltunni eins og kyrkislanga

meðan hinir tveir þriðjungarnir svelta

og hvílíkar allsnægtir

happdrættisíbúð og happdrættisbíll

kæliskápur aligæs rínarvín

sjónvarpstæki

sem flytur oss kraftbirtingu svindlsins

rafeindaheili

sem gerir skynfæri vor að niðursetningum

eldflaug

sem þeytir oss út í tómið

hvílík tækni að breyta vél í sál sál í vél

en hvar er sáluhjálpin

hvar er hamingjan

hversvegna bregðast guðfræðingarnir svona

hversvegna gafst séra sigurður upp

hversvegna forhertist félagi stalín

hvað segir mogginn hvað segir pravda

mogginn það þýðir morgunblaðið

eigum vér þá að segja upp morgunblaðinu

pravda það þýður sannleikurinn

eigum vér þá að hætta að leita sannleikans

hvað er sannleikur

hvað er sannleikurinn mörg megatonn

eða er sannleikurinn þessi neftrónugeisli

sem leggur líf vort í einelti gegnum múrana

förum varlega félagar

allsnægtir einar færa oss ekki hamingju

leghöll úr marmaranægir oss ekki til sáluhjálpar

glötum ekki sjóninni við að metast á

um afrek eða fólskuverk harmleiksins

röltum heldur fram í dal

og gefum aumingjanum spegil

því tíminn er naumur

og allir sem heyja þetta kalda dauðastríð

eru blaktandi blaktandi strá

– Jóhannes úr Kötlum

Færðu inn athugasemd