Þessi er gömul og góð – en endurbætt. Jón er enn á sínum stað. Það er kannski passlegt að hann standi þarna einn á 1. desember.
1. desember veldur mér alltaf smá ruglingi. Fólk byrjar í reynd að telja niður til jólanna þann 1. desember, en á sama tíma er þetta fullveldishátíð Íslendinga (þótt reyndar fari minna fyrir því í seinni tíð).
Utan alls þessa, á svo systir mín afmæli á þessum merkisdegi.
The password to post a comment is: