Ég er mjög hrifinn af aspas. Hvort sem aspas er ferskur, niðursoðinn, steiktur eða bakaður, þá er hann bara góður.
Um daginn vantaði mig niðursoðinn aspas fyrir ofnrétt sem ég var að vinna að. Ég fór út í búð og þar sá ég þetta.
Síðan hvenær fór það að vera siðlegt að rukka 739 kr fyrir 425g af niðursoðnu grænmeti? Jafnvel þó að það sé vinalegur grænn maður á dósinni?
Ég held að maður væri hard pressed að finna Breta sem væri til í að greiða tæp 4 pund fyrir svona dós, eða Bandaríkjamann sem gæfi tæpa 6 dollara fyrir 15 únsur af niðursoðnum aspas.
Er gull í þessum aspas? Er þetta töfra aspas, sem gefur manni ofurkrafta? Ég veit það ekki.
Ég veit bara að manneskjan í búðinni, sem setti aspasinn þarna á hilluna, á ekki nóg fyrir 7 aspasdósum eftir erfiðan dag, ef hún vill halda aspaspartý.
Hvað mundir þú greiða mikið af sálu þinni fyrir aspas?
|
[ Add Comment ]
[ Reply ]
[ Reply ]
[ Reply ]
[ Reply ]
[ Reply ]
En nei. Það tekur mig sárt að nefna það, en þessi aspasdós var til sölu í hinni annars frekar sanngjörnu og viðkunnanlegu Melabúð. Skandall.
[ Reply ]
Add Comment
The password to post a comment is lortur.
Tags
<i>,<u>and<b>are permitted for styling.