Header
29.05.2010 | Hvað er Besti Flokkurinn?

Hvað er Besti Flokkurinn?

argnarr

Það er erfitt að átta sig á því hvað Besti Flokkurinn stendur fyrir. Um það gefur hann ekkert upp sjálfur. Margir hafa því farið að geta sér til um eðli framboðsins og tilætlanir þess. Menn gefa sér þar ýmislegt.

Allskonar gagnrýni

Eðli málsins samkvæmt finna menn úr öllum áttum hjá sér hvöt til að skoða framboð Besta Flokksins með nokkuð gagnrýnum augum. Staðreyndin er sú að Besti Flokkurinn hefur gerbreytt stöðunni í Reykjavík.

Af vinstri vængnum heyrist sú gagnrýni að Besti Flokkurinn sé einhverskonar hægri-samsæri. Þar ganga menn jafnvel svo langt að tala um Besta Flokkinn sem fasistahreyfingu eða ráðast á einstakar persónur hans og tala um kristilegt íhald. Slíkt er ef til vill skiljanlegt, þar sem mesta fylgi Besta Flokksins virðist ættað frá vinstri og menn horfa á mótvægið við Sjálfstæðisflokk renna í sandinn, en slíkar nálganir eru aldrei heillavænlegar. Jafnvel þótt allt þetta væri satt, þá ættu þessi sjónarmið rétt á sér. Og menn eru komnir á hættulega braut þegar þeir tala um að eitt framboð steli fylgi frá öðru. Þannig hafa vinstri menn kannski gert sér sjálfum verstan grikk í allri umræðunni.

Á miðjunni reyna menn að spila með og “kóa.” Þeir reyna að sækja aftur glatað fylgi með því að tala um að þeir séu ekki með sama “hrokapirring” og aðrir og eigi einhverja samleið með flokknum. Þetta er undarlegt viðmót og óljóst hverju það skilar eða hverju það á að skila.

Minnst heyrist þó frá hægri vængnum. Þar vita menn að best er að láta lítið fyrir sér fara, og sækja sitt fasta fylgi sem gengið er að vísu út yfir gröf og dauða.

Allstaðar tala menn þó um Besta Flokkinn sem þreyttan brandara sem þurfi helst að stöðva.

Besti Flokkurinn er það sem hann er

Engin af þessum tilbúnu útskýringum að ofan skiptir þó í raun máli. Besti Flokkurinn er framboð. Hann er alvöru framboð. Hann er líka orðinn pólitískt framboð án þess kannski að hafa nokkurn tíman ætlað sér það, þrátt fyrir yfirlýsingar um “ópólitískt eðli” hans í augum kjósenda hans. Hlutverk og stefna Besta Flokksins verður sennilega eingöngu skilin út frá yfirlýsingum kjósenda flokksins, í ljósi þess að flokkurinn gefur ekkert upp um þessi mál sjálfur. Á endanum hljóta kjósendur flokksins að veita honum hlutverk. Í það minnsta nota þeir flokkinn til að tjá pólitíska afstöðu sína og fær hann þannig sitt pólitíska gildi.

Besti Flokkurinn er allskonar

Hvernig líta stuðningsmenn Besta Flokksins á flokkinn? Ýmis ólík sjónarmið koma þar fram og þeim verður að gefa gaum ef skilja á flokkinn og þau margumræddu skilaboð sem kjósendur hans eru að senda út. Helstu sjónarmið sem rekast má á eru eftirfarandi, þótt listinn sé ekki tæmandi:

  • Að hann sé einhverskonar antithesisfjórflokksins” og uppreisn gegn flokkakerfinu.
  • Að hann sé afskræmdur spéspegill samtímapólitíkur og firna þörf ádeila.
  • Að hann sé í það minnsta heiðarlegur í óheiðarleika sínum.
  • Að hann sé sannarlegur refsivöndur sem beita megi á “hinn spillta fjórflokk”.
  • Að “fjórflokkurinn” hafi ítrekað svikið öll sín loforð og þetta geti og geri Besti Flokkurinn líka.

Í þessu flestu birtist nokkuð sínísk heimsmynd sem getur seint talist uppbyggileg. Á sama tíma virðist enginn heilbrigður skeptísismi fara með. Innifalið í þessari heimssýn er sú skoðun að allir séu spilltir og að ekkert hafi neinn tilgang. Þessi sjónarmið verður þó að skoða nánar.

Besti refsivöndurinn

Mest af öllu tala menn um refsimátt Besta Flokksins. Að með Besta Flokknum megi refsa “fjórflokknum” sem á að heita einhver samspyrrt mynd jafn ólíkra flokka og Sjálfstæðisflokks og VG. Slíku hugtaki er erfitt að átta sig á ef fyllstu sanngirni er gætt. Þá er talað um að með heiðarleika og hreinskilni Besta Flokksins megi refsa öllum hinum fyrir spillinguna sem þeim er jaft brígslað um. Helst dettur manni í hug að kjósendur taki þar sjálfa sig út fyrir alla atburðarásina og fyllist einhverri þórðargleði yfir meintum óförum “hins spillta fjórflokks” þótt að áhrif þessa á nærumhverfið, Reykjavík, séu með öllu óljós. Menn taka þar ákvörðun um að einhverskonar “Phyrrosarsigur” á flokkakerfinu sé í sjálfu sér eftirsóknarverðari en að menn reyni að byggja á einhverri hugsjón eða raunsæi í nálgun sinni á borgarmálin.

Um allskonar hreinskilni sem pólitíska dygð

Í hverju felst hreinskilni? Er það nóg að stíga fram með mótsagnakennda stefnuskrá, hvers eina markmið er að vera sem óraunhæfust, og lýsa því hreinskilnislega yfir að ekki megi búast við neinu, því pólitík sé drasl? Vissulega er voða töff að "gefa bara skít í allt þetta kjaftæði" en á einhverju stigi málsins verða menn að leyfa sér að hætta að vera fullir andaktar yfir slíkum sínískum töktum sem sæmdu sér ef til vill betur á göngum menntaskóla borgarinnar.
Stjórn borgarinnar er nefnilega alvöru mál og það skiptir öllu máli hverjir koma þar að. Þetta höfum við séð í því hvernig tókst að bremsa af REI hér um árið, á meðan t.d. Suðurnesjamenn gengu alla leið með HS Orku og seldu fjöreggið sitt um leið og þeir héldu áfram að yfirskuldsetja sig. Hreinskilni hlýtur fyrst og fremst að felast í því að setja fram raunhæfa stefnu og reyna svo eftir fremsta megni að framfylgja henni þó ætíð sé ljóst að ekki gangi allt eftir.

Höfum það svo loks á hreinu að Reykvíkingar og Íslendingar almennt hafa nú ekki verið manna duglegastir við að verðlauna hreinskilni stjórnmálamanna, því hér má ekki ýja að neinu sem "leiðinlegt" getur talist án þess að gjalda afhroð í kosningum.

Um allskonar svikin loforð

Stefnuskrár eru ekki matseðlar til að panta eftir. Eðli málsins samkvæmt krefst pólitískt samstarf málamiðlana og góðir hlutir gerast því hægt, þetta er eðli og kostur lýðræðisins. Þar finnst svigrúm almennings til að bremsa af óheillavænlega þróun. Ef slíkt svigrúm væri ekki fyrir hendi, værum við stödd furðulega nærri einhvers konar alræðisstjórn. Þessi þörf á málamiðlunum í pólitísku samstarfi er eitthvað sem virðist mörgum núverandi stjórnmálamönnum, sem og stórum hluta kjósenda, hulin ráðgáta. Allir sem hafa þó farið við þriðja mann á vídeóleigu kannast við það að þurfa að standa í sáttasamningum um viðfangið, sem oft getur reynst flóknara en ætla mætti. Stefnuskrár flokkanna eru fyrst og fremst plögg sem gera grein fyrir viðmiðum og hugmyndum flokkanna, svo kjósendur geti staðsett sig gagnvart þeim. Á dugnaði og getu stjórnmálamanna til að fylgja þessum stefnumálum eftir, í meðbyr og mótbyr, er svo hægt að hafa sértækar skoðanir og byggja frekari pólitískan stuðning á einstökum framboðum og flokkum. Aukinheldur er fólki full frjálst að ganga til liðs við flokkana og hafa þar stefnumótandi áhrif þar sem upp á vantar.

Um hæfi allskonar frambjóðenda Besta Flokksins

Það er auðvelt að lenda í hálfgerðri krísu með sjálfan sig þegar kemur að Besta Flokknum. Þar er nefnilega ýmislegt fólk sem er traustvekjandi og má geta sér til um að hafi ærleg og sanngjörn sjónarmið. Besti Flokkurinn hefur hrist á ómetanlegan hátt upp í stjórnmálunum á höfuðborgarsvæðinu, jafnvel í landspólitíkinni, og á hann miklar þakkir skildar fyrir það þarfa verk. Vandinn er þó alltaf sá að hjá Besta Flokknum grípur maður í ekkert nema tómið þegar kemur að því að mynda sér einhverja pólitíska skoðun sem skiptir raunverulegu máli. Stuðningsmenn framboðsins spyrja eðlilega hví framjóðendur Besta Flokksins ættu að vera minna hæfir til að stjórna borginni, þegar gagnrýnendur benda á “reynsluleysi.” Sumir þeirra halda þá einnig fram að afskipti af borgarmálunum sé lítið mál og hvort eð er ekki í höndum kjörinna fulltrúa.

Ekkert segir að fólkið í Besta Flokknum sé þess minna umkomið að stjórna borginni. Hinsvegar er það óræðni stefnu þeirra sem dæmir það úr leik. Ennfremur gefa yfirlýsingar flokksmanna um að láta álitamál innan borgarinnar í hendur “sérfræðinga” nokkra ástæðu til áhyggja um hvort hugsjón flokksins sé á endanum einhverskonar teknókrasía.

Mikið hefði verið óskandi að það góða fólk sem Besta Flokkinn skipar, hefði skapað nýjan lýðræðislegan flokk með alvöru markmið sem hægt væri að fylkja liði á bakvið. Í stað þess stendur það frammi fyrir kjósendum með bros á vör en óræða og mótsagnakennda stefnu, sem ómögulegt er að segja til um hvar endar. Fyrir þetta framlag, sem ekkert er, ætlast þau til að fá afhent “Carte Blanche” á stefnu borgarinnar næstu fjögur árin. Ef til vill þykir þetta sumum boðlegt.

Um ábyrgð allskonar kjósenda

Á endanum er Besti Flokkurinn ekkert annað en hentug útleið kjósenda frá því að líta í eigin barm og gangast undir þá ábyrgð sem því fylgir að vera kosningabær maður. Kjósendur móta framboð flokka með eftirspurn eftir málefnum. Kjósendur móta framboð með þátttöku í flokkastarfi. Kjósendur móta flokka og framboð með því að nota atkvæði sitt á upplýstan hátt, og ýta þannig undir heiðarleika í orði og gjörðum en bægja frá undirförli, spillingu og vanhæfi. Á kjósendum hvílir svo loks sú megin ábyrgð að meta af heilum hug hvort stefnuskrá flokka er raunhæf og hvar eftirfylgni við hana skilar sér.

Var eitthvað óskýrt við stefnu flokkanna á síðustu tveimur kjörtímabilum? Vissulega hafa ekki öll kosningaloforð verið efnd. Það hefur alltaf legið ljóst fyrir. Stefnuna má hinsvegar greina mjög hispurslaust eftir því hvernig atkvæði kjósenda hafa fallið á undangengnum kjörtímabilum, hún hefur leitt okkur hingað sem við stöndum.

Hvað eigum við að ganga langt í að leika fórnarlambið og leiksopp örlaganna í þessum efnum, hversu langt getum við gengið með það, og hversu töff er það þegar upp er staðið?

Um hlut allskonar fjölmiðla

Í núverandi árferði er svo sem ekkert auðvelt að gera upp hug sinn. Upp er komin leiðinleg og erfið staða og ekki hjálpar til að fjölmiðlar virðast uppteknari af dægurflugum á borð við Eurovision en að kynna okkur málefni flokkanna. (Þegar hér er komið við sögu hefur undirritaður setið undir tveimur endursýndum Eurovision keppnum en er ómögulegt að nálgast sjónvarpsumfjöllun um kosningarnar frá því fyrr í kvöld.) Nú sem aldrei fyrr reynir á mann að vera "upplýstur kjósandi". Persónulega hef ég ekki gert upp hug minn, en ég veit að nú, sem aldrei fyrr, ríður á að kynna sér menn og málefni, gera upp fortíðina og kjósa með langtímahagsmuni að leiðarljósi. Ekki er í boði að afhenda stefnulausum óútfyllta ávísun þegar kemur að rekstri borgarinnar. Mikilvægi þess er undirstrikað með því að ekki er í boði að kjósa að nýju áður en kjörtímabilið er á enda, sama hversu margir pottar og pönnur eru barðar ef verða vill.

24.02.2010 | Ummæli

"Ummæli
24.02 2010 kl.08:53
Tilkynna óviðeigandi ummæli!

Slóð

Íslendingar voru svo lengi vankaðir í áfalli að þeir áttuðu sig ekki á óréttinum sem þeir voru beittir.

Íslendingar voru í losti í ár. Gátu hvorki séð né hugsað skýrt.

Fullir sjálfsásökunar sögðu Íslendingar já og amen við kolólöglegum kröfum Breta og Hollendinga án þess að átta sig á samhengi hlutanna.

Án þess að skilja hve alvarlegar aðgerðir fólust í beitingu hryðjuverkalaga á Ísland. Og af breska forsætisráðherranum að lýsa yfir gjaldþroti Íslands.

Eins og þetta væri aukaatriði.

En þær aðgerðir voru aðalatriði í málinu. Ekki aukaatriði.

Þær voru grófasta árás sem gerð hefur verið á vestrænt ríki innan Nato frá stofnun.

Það var ekki fyrr en forseti Íslands neitaði að skrifa undir afarkostina, sem þjóðin áttaði sig alminnilega á þeim órétti sem hún hefur verið beitt.

Breska ríkisstjórnin sem bráðum er á förum er og var gerandinn í málinu. Holland er í eftirdragi.

Íslendingar eiga í samningaviðræðum við fallandi ríkisstjórnir í Icesafe.

Hver veit nema hollenska ríkisstjórnin hafi sprungið vegna Icesafe þótt stríðið í Afganistan væri kynnt sem tylliástæða.

Íslendingar eiga ekki að láta lögleysingja segja sér fyrir verkum. Hvað þá að setja sér afarkosti.

Látum þetta ofbeldisfólk segja nei við umsókn Íslands í Evrópusambandið.

Það afhjúpar hið sanna eðli þeirra fyrir heimsbyggðinni.

Þessir menn tala eins og orð þeirra séu ‘endanleg’ meðan sannleikurinn er sá að þeir eru í sjálfheldu.

Bráðum valdalaust fólk býður Íslendingum enga afarkosti.

Íslendingar geta ákveðið sjálfir einhliða hvað þeir vilja gera í Icesafe.

Íslendingar eiga að leggja fram sanngjarnt og rausnarlegt lokatilboð sem er þeim sjálfum þóknanlegt og segja: Take it or leave it."


Söguskoðun Jónasar frá Hriflu?

23.02.2010 | Edward Hill
edwardhill

Sveinbjörn benti mér á eitt sérkennilegasta video-klipp sem ég hef séð.

Um er að ræða sovéskt sjónvarpsefni, þar sem söngvarinn Edward Hill lætur í ljós fáheyrða sönghæfileika sína.

Ég veit ekkert meira um þennan undarlega mann og fólk verður bara sjálft að finna sér til upplýsingar um hann, ef forvitnin ber það ofurliði.

Athyglisvert líka, að sjá hversu psychadelískir Rússarnir voru á þessum tíma. Ekki hefði ég trúað þeim til þess.

Ég elska youtube fyrir nákvæmlega þetta.

23.02.2010 | Bangsi Bestaskinn
tigear
16.02.2010 | Dudeism
dude vinci
Það er eitthvað innilega heillandi við Dudeisma.
16.02.2010 | Samtök um lögleiðingu kanna... hey... fokkit maður...

Datt inn á hádramatíska frásögn af samskiptum ungs kannabisneytanda við lögregluna, sem reyndust vera á heldur leiðinlegum nótum.

Ungi maðurinn tíundar í miklum smáatriðum leiðinlega framkomu laganna varða í sinn garð, sem ég get svo sem alveg tekið undir, en svo kemst hann helst að þeirri niðurstöðu að vandamál samfélagsins séu að einhverju leyti tengd því að kannabisneysla er ólögleg í landinu. Hann færir því rök fyrir því að leyfa ætti kannabisneyslu, einna helst sökum þess að þá hefði hann síður lent í þeirri óskemmtilegu reynslu sem hann lýsir á síðunni.

Ekkert af þessu er sérstaklega í frásögur færandi nema gullmolinn sem hrekkur af lyklaborði eins lesandans í athugasemdakerfinu og varðar erfiða hagsmunabaráttu kannabisneytenda á Íslandi.

"Það er engin spurning. En við höfum fáa sem þora - eða nenna - að gera nokkuð, svo sorglegt sem það nú er. Meira að segja voru stofnuð samtök í fyrra - en ekkert hefur gerst eftir það, þrátt fyrir mikin meðbyr og gott veganesti."

12.02.2010 | Kryppan

Kryppa.com er nýr íslenskur fréttavefur sem gefur sig út fyrir að birta fréttir, viðhorf og fróðleik í réttu samhengi.

Sannarlega aðdáunarvert ætlunarverk, en fljótlega renna á mann tvær grímur varðandi ágæti þessa framtaks.

Á þessu stigi málsins er ég ekki viss hvort að vefurinn er hugsaður sem grínefni eða ætlast til þess að vera tekinn alvarlega.

Kryppan segir frá ýmsum brennandi málefnum, eins og áhrifum bóluefnis á einhverfu, hvernig Morgunblaðið vill banna biblíuna og hvernig það á að selja Frökkum hluta Englands.

Einnig er skemmtilegt að lesa um úttekt Óskars Arnórssonar á Gráfólki og púkum í samfélaginu.

Kryppan er fróðleg lesning, öllum þeim sem vilja komast í snertingu við brimrót geðhvarfa- og vænisýkinnar.

Tjekk it!

10.02.2010 | Lénharður fógeti

Úfff! Missti næstum því lénið mitt. Fyrirtækið sem ég versla við er búið að breyta um nafn og ég hélt að það væri eitthvað óprúttið e-mail scam í gangi.

Fattaði svo að það voru sannarlega liðin tvö ár frá því að ég endurnýjaði arnaldur.org síðast.

Alltaf mjög ótraustvekjandi þegar fyrirtæki sem maður kannast ekki við, segja að maður þurfi að fara á heimasíðuna þeirra og gefa upp kortanúmer.

Allavega, þá er lénið tryggt í tvö ár til viðbótar.

Léninu mínu ótengt, þá fann ég þessa skemmtilegu hugvekju um Akureyri, hljómsveitina Sign og hryllingsmyndir á síðunni: Jeg er einsog jeg er, afþví að jeg skrítnaðist! Einhverra hluta vegna er titillinn á pistlinum Aumingja Lénharður lávarður.

Er þetta eitthvað Akureyrskt?

09.02.2010 | Google fail 2
germanvefslagsida
06.02.2010 | Mars Rover

Fann þetta strip um daginn. Góð hugmynd og vel útfært. Ekki laust við að maður finni hálf partinn til með litla vélmenninu.

tumblr kx2p9pdXwp1qz6f9yo1 500
05.02.2010 | Hashima Island

Fann fáránlega athyglisverðan myndaþátt um yfirgefna eyju undan ströndum Japans, skammt frá Nagasaki.

Fullt af tómum húsum og brýr á milli blokkanna. Mjög cyberpönk!

Hver vill koma með mér þangað og stofna fríríki?

05.02.2010 | Misuta Subakoru!!!
misutasupakuru
05.02.2010 | Blellsvansað partýgums á klaka!
drunkhug1


Hvað segir liðið? Erum við að tala um sprellvirki í kvöld! HEeheheHEhehehe!!! LOL!

Seriously! Bjallið í kjallinn, hann er ferskur sem lækur og hress eins og hvalur!

Þvílíkur Bjúddari!

04.02.2010 | ASPAS 4EVER
greengiantasparagus

Ég er mjög hrifinn af aspas. Hvort sem aspas er ferskur, niðursoðinn, steiktur eða bakaður, þá er hann bara góður.

Um daginn vantaði mig niðursoðinn aspas fyrir ofnrétt sem ég var að vinna að. Ég fór út í búð og þar sá ég þetta.

Síðan hvenær fór það að vera siðlegt að rukka 739 kr fyrir 425g af niðursoðnu grænmeti? Jafnvel þó að það sé vinalegur grænn maður á dósinni?

Ég held að maður væri hard pressed að finna Breta sem væri til í að greiða tæp 4 pund fyrir svona dós, eða Bandaríkjamann sem gæfi tæpa 6 dollara fyrir 15 únsur af niðursoðnum aspas.

Er gull í þessum aspas? Er þetta töfra aspas, sem gefur manni ofurkrafta? Ég veit það ekki.

Ég veit bara að manneskjan í búðinni, sem setti aspasinn þarna á hilluna, á ekki nóg fyrir 7 aspasdósum eftir erfiðan dag, ef hún vill halda aspaspartý.

Hvað mundir þú greiða mikið af sálu þinni fyrir aspas?

04.02.2010 | Le Garcon du Sissy
lesissyboy
Is that what a real man is supposed to look like?
04.02.2010 | A National Socialist PARTY!

Ég rakst á mjög athyglisverða þýska bloggsíðu sem heldur utan um fréttir, myndir og allskonar annað sem tengist Hitler á vefnum. Gígantískt verkefni getur maður rétt ímyndað sér.

Vefurinn er á þýsku, og er tengdur við dagblaðið Die Tageszeitung eða Taz eins og það er kallað, en það á sér víst nokkuð stórann lesendahóp meðal þýsku vinstri-intelligensíunnar. Þrátt fyrir að vefurinn sé á þýsku er nokkuð gaman að fletta í gegnum færslurnar (og jafnvel nota tækifærið til að hressa upp á þýskuna sína).

Uppáhaldið mitt so far er kóreski Adolf Hitler Teknó Barinn með kokteil sýningunni.

04.02.2010 | Smoker's Choice

Mjög góð grein um fáránlegar ofsóknir í garð reykingafólks. Viljum við í alvörunni vera svona totalitarian shitfaces? Ekki ég.

Annars fannst mér merkilegt að sjá þarna hvað reykingafólk heldur uppi stórum hluta heilbrigðiskerfisins í Bretlandi. Væri til í að sjá hvað við erum að leggja með okkur hérna.

04.02.2010 | Dómkirkjan í Reykjavík
domkirkjanireykjavik

Nokkrum sinnum hef ég lent í þeirri undarlegu aðstöðu að reyna að útskýra að Dómkirkjan í Reykjavík sé raunverulega dómkirkja (e. cathedral).

Fólki þykir þetta eitthvað grunsamlegt þar sem orðið virðist hafa fengið nokkuð yfirfærða merkingu og frekar gilda um stórar hlaðnar kirkjur með miklu flúri og skrauti eða fínum gluggum og þess háttar.

Fólk virðist almennt vera frekar lítt uppnumið yfir Dómkirkjunni við Austurvöll og þykir það ósennilegt að hér sé raunveruleg dómkirkja á ferðinni. Ekki er laust við að maður finni sjálfur til hálfgerðar minnimáttarkenndar þegar maður reynir að útskýra þetta fyrir fólki.

Orðið cathedral kemur af latneska orðinu cathedra sem merkir sæti. Sæti biskups í þessu tilviki.

Cathedral þýðir því með réttu biskupskirkja eða embættiskirkja biskups.

Ef maður gerir myndaleit að Dómkirkjunni í Reykjavík verður ljóst að margir eru illa haldnir af ofangreindum misskilning, en við slíka leit hrannast upp myndir af Hallgrímskirkju, sem er einmitt ekki dómkirkja.

Reyndar mætti kannski með einhverju móti halda því fram að Hallgrímskirkja væri að sumu leyti dómkirkja, en núverandi biskup, sem virðist hafa verið haldinn einhverskonar svipaðri minnimáttarkennd í tengslum við dómkirkjuna sína, ákvað að láta vígja sig til biskups í Hallgrímskirkju. Tilfærsluna rökstuddi hann með því að fatahengið þar væri stærra og þægilegra fyrir alla erlendu viðhafnargestina sem von væri á.

03.02.2010 | Mark Chopper Reid
markchopperreid


Ég vil fá Chopper Reid til Íslands til að stappa stálinu í landann. Við þurfum klárlega svona wake-up call.

Stutt, beinskeytt og umbúðalaust.

Þetta þyrftu margir að taka sér til umhugsunar.

02.02.2010 | Hurrah for Moobies!

Samkvæmt frétt á Guardian þá hafa brjóstaminnkunaraðgerðir meðal karla aukist um 80%.

Við skulum hafa það í huga að körlum er það ekki eðlislægt að sporta tits-um nema þegar þeir eru orðnir morbidly obese. Og þá er stóra vandamálið ekki júllurnar.

Það verður að segjast eins og er að það er frekar hallærislegt að sporta "moobs-um" en að leggjast undir hníf til að láta skera af þér man-tits-in, er kannski mögulega verra.

Og hvað? Eru menn þá bara risa sekkir, nema með fallega mótaða pecca hvílandi ofan á ístrubelgnum?

Mér finnst þetta alltsaman mjög bjánalegt og fyndið.

Hættiði bara að éta allt þetta beikon og svínafitu!

29.01.2010 | J.D. Salinger látinn
salinger5article

RIthöfundurinn J.D. Salinger lést á dögunum.

Sjálfur las ég einu virkilega frægu bókina hans, The Catcher in the Rye um unglingsstrákinn Holden Caulfield, þegar ég var svona 18 ára, og þótti mikið til koma. Hef af og til verið hugsað til bókarinnar síðan þegar ég hef fundið mig í skrítnum eða erfiðum félagslegum aðstæðum.

Þess má geta að bókin hans er líka ofboðslega fræg fyrir þær sakir að Mark Chapman, morðingi John Lennon var með hana á sér þegar hann framdi ódæðið, og hafa menn lesið mismikið og misviturlegt í það.

Annars er hérna frekar skondin umfjöllun um andlát Salinger á The Onion.

29.01.2010 | Meat bubbles

Mér varð illt í augunum og fór að svima eftir að ég var búinn að spila kjötspilið á heimasíðu tímaritsins BEEF! í um 4 klst.

Það er langt síðan ég varð svona háður einhverjum tölvuleik.

Leikurinn er afbrigði af hinum klassíska tölvuleik Bubbles þar sem búið er að skipta út blöðrunum fyrir alls kyns kjötafurðir.

Ég er orðinn þeirrar skoðunar að leikurinn svindli. Það næsta sem ég hef komist því að klára hann var þegar ég átti sjö kjötstykki eftir. Þá skyndilega byrjuðu línurnar að hrannast niður aftur.

Annars er ég nú sæmilega góður í Bubbles almennt, og klára hann mjög gjarnan með lítilli fyrirhöfn.

Maður er með svo ofboðslega fína spatial orientation, sjáiði til.

29.01.2010 | Strákarnir okkar vs. þrælarnir okkar

Fór til tannlæknis í morgun og var mættur full snemma fyrir uppgefinn tíma.

Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af læknabiðstofum, eða því að reyna að gera mér upp áhuga á 2 ára gömlu Séð og Heyrt blaði, þannig að ég sat úti í bíl og reyndi að hlusta á útvarpið þar til kæmi að tímanum mínum.

Útvarpið reyndist bara ekkert mikið skárra í þetta sinn.

Ég flakkaði á milli rása, sem voru hver annarri óáhugaverðari, þar til ég kom að FM 95,7, en þar voru þrír menn að ræða um handbolta, sem virkaði svona illskárst á mig.

Þetta var rangt mat hjá mér.

Umræðurnar voru eiginlega alveg hræðilegar:

-En afhverju getum við ekki unnið Frakka?

-Við getum alveg unnið Frakka!

-Við höfum ALDREI unnið Frakka!

-Jú! Við höfum víst unnið Frakka!

-Höfum við aldrei unnið Frakka?

-Jú, fyrir 3 árum, held ég.

-Jaaaááá...

-Já, ok.

-Já.

-Það væri nú samt verst held ég að tapa leik... tapa leik á móti Pólverjunum, held ég.

-Hva'! Já gömlu þrælahöldurunum, já... nei... ég meina... þrælunum... ég meina... þrælunum okkar?

-Hehehe... Já, ég veit nú ekki alveg með það svosem, en það er alltaf eitthvað...

-...eitthvað með þessa Pólverja.



Hvað get ég sagt?

27.01.2010 | Google fail
hungalthinghighlight
26.01.2010 | Gítarkvenhetjur
pj harvey1

Í tengslum við fyrri færslu mína um Gítarhetju-plakat, benti Þórdís réttilega á að ekki var neinum konum fyrir að fara á plakatinu. Eitthvað sem ég hafði ekki veitt neinni sérstakri eftirtekt sjálfur, en vakti mig til umhugsunar þegar hún minntist á það.

Í kjölfarið reyndi ég að telja upp einhverjar kvenkyns gítarhetjur, (með áherslu á hetjur,) sem væru eftirminnilegar, en greip hvarvetna í tómt.

Eftir þó nokkra umhugsun, detta mér eiginlega bara þrjár konur, sem hafa eitthvað með gítara að gera, í hug.

Joni Mitchell, PJ Harvey, og Aimee Mann.

Reyndar er ég ekki einu sinni viss um að ég myndi flokka þær allar sem einhverjar sérstakar gítarhetjur, en jæja, látum þær standa.

Einhverjar uppástungur?

26.01.2010 | The Maillard Reaction
beef cover

Eins og má kannski sjá á færslunum hérna að neðan, hef ég nokkuð verið að velta matreiðslu fyrir mér.

Meira að segja promptaði það Sveinbjörn til að bendla mig við þetta þýska karlrembu-kjötætu tímarit sem nefnist BEEF! (sem ég verð þó að segja að er nokkuð vel heppnaður titill).

Eftir að hafa lesið fleiri síður um "hina fullkomnu steik" eða "hinn fullkomna hamborgara" rakst ég óvart á þessa hugleiðingu um mikilvægi þess "að loka kjötinu" með steikingu. Greinin kollvarpar að nokkru hugmyndum mínum um hvernig á að steikja kjöt, eða aðallega afhverju maður á að gera það á tiltekinn hátt.

Einnig finnst mér rétt að benda sérstaklega á þessa matreiðslusíðu sem tengt er við í greininni (þó að flestir hlekkirnir í greininni séu líka nokkuð athyglisverðir). Ekki svo að skilja að ég hafi prófað tillöguna, en hún hljómar gómsæt og sennileg og ég hef hugsað mér að prófa þetta á næstunni.

Í greininni er bent á það að snöggsteiking á hvorri hlið (þ.e. "að loka kjötinu") geri í raun ekkert til að halda safanum inni í því. Mun heldur virðist þessi snögga steiking valda því að minna af vökvanum nær að gufa upp (út af snögga steikingartímanum) og svo verður víst eitthvað sem kallast Maillard reaction, sem á meira skylt með því að rista hluti, til þess að það bragðast betur.

Allt í allt mjög áhugavert. Mæli með því að renna yfir þetta ef maður hefur minnstan áhuga á steikum.

26.01.2010 | The Onion

Datt eitthvað inn á The Onion áðan eins og ég geri af og til. Kannski hálf ódýrt að pósta hérna linkum á Onion fréttir, en mér fannst þetta bara vera aðeins of skondnar pælingar.

Fréttaflutningur af viðbrögðum Súmera við sköpun heimsins.

Hugleiðingar læknastéttarinnar á miðöldum um uppruna Svarta Dauða.

25.01.2010 | Cheese & Burger Society

Talandi um hamborgara, þá sá ég link á þessa sjúklega smekklegu ostborgara síðu hjá Kára.

Borgararnir sem eru þarna, eru geðveikt lekkerir og djúsí og fallegir. Mig langar að borða þá alla.

Stórkostlegur minnisvarði um gjöfina til mannkynsins, sem ostborgarinn er.

21.01.2010 | Lick my salty butter balls
ip0112 butter balls2 lg

Internetið er stútfullt af myndum af ógeðslegum mat.

Vefsíðusafnið This is why you're fat heldur ágætlega utan um þennan mat, og þá einkum miður girnilegt feitmeti.

Sjálfur er ég mikið fyrir kjöt og kjötrétti gefinn, og einkum og sér í lagi feitmeti á borð við beikon, ostborgara og ostaskinkubeikonrjóma. Þrátt fyrir það gengur þetta flest mjög fram af mér. Til dæmis finnst mér sykur-rjóma-kleinuhringja kakan óraunveruleg og Þrefaldi-D borgarinn virkar meira á mig eins og kúkaklessa með graftarvessum en safaríkur borgari.

Maður gerir ráð fyrir að mikið af þessum réttum hafi komið til í aðdraganda pulsupartía eða fyrir ruðningsgláp á sunnudegi.

Athyglisverðasti rétturinn þótti mér samt eiginlega vera sá einfaldasti. Djúpsteiktar smjörkúlur, eins og þær sem eru á myndinni, eru ekki að þykjast vera neitt annað en þær eru. Smjörkúlurnar eru skemmtileg viðbót við matreiðsluflóruna í Texas-ríki og eru ef til vill klámfengnasta virðing sem harðri fitu hefur nokkurntíman verið vottað.

Seriously. Langar mann einhvern tíman til að borða smjörkúlur?

Nei... Ókei...

...En ef ég djúpsteiki þær fyrst?

20.01.2010 | Rocket Surgery

Courtesy of Einar.

rocketsurgery
20.01.2010 | Consollection
consollection

Frekar töff síða sem ég rakst á.

Eftir því sem ég best fæ séð, þá er einhver gaur búinn að safna, eða allavega taka myndir af 145 leikjatölvum. Á síðunni er þeim svo fallega raðað upp og maður getur smellt á viðkomandi leikjatölvu og fengið nánari upplýsingar um hana, svo sem útkomuár, framleiðandi o.s.frv. Það sem er samt mest awesome er að það fylgja myndir af upprunalegu pakkningunum sem vélarnar voru seldar í.

Fyrir þá sem vilja syrgja gömlu vélarnar sínar.

19.01.2010 | Guitar Hero

Frekar awesome plakat með legendary gítarhetjum. Því miður neglect-aði ég að merkja við síðuna, hvar ég fann þetta og ætla því að stelast til að birta þetta svona hrátt.

Skelli kannski inn link við tækifæri ef ég rekst á þetta aftur.

Viðbót:
Fann aftur síðuna. Þetta er eftir gaur sem heitir Maxim Dalton.

guitarlegends
19.01.2010 | Afsakið fröken? Eruð þér portkona?

Athyglisverð grein á Guardian um rannsókn sem var framkvæmd á Bretlandi á neytendum vændisþjóustu.

Í greininni er vísað í viðtöl við karlmenn sem höfðu keypt sér þjónustu vændiskvenna og fjallað um viðhorf þeirra til kvennanna, iðnaðarins og löggjafarinnar sem umlykur iðnaðinn.

Nokkur sjónarmið koma þarna fram, sem mér þóttu frekar merkileg og hef nú ekki heyrt sérstaklega mikið af áður, þegar þessi mál hafa verið rædd. Þá á ég t.a.m. við það að mönnunum virtist nokkuð sama hvort vændiskonurnar voru fórnarlömb mansals eða ekki, en frekar hefur farið hærra fyrir því að menn haldi því fram að mansal sé hverfandi innan iðnaðarins og að allir séu þar af fúsum og frjálsum vilja.

Einnig þótti mér athyglisvert að stór hluti viðmælendanna virtist finna fyrir einhverskonar skömm og vanlíðan yfir þessu öllu saman, en voru samt virkir þátttakendur í ferlinu.

Þá þótti mér eiginlega hálf ógnvænlegt að lesa um það að mennirnir sjálfir virtust sannfærðir að ef iðnaðarins nyti ekki við, þá yrðu menn að þvinga konur til samræðis við sig, því þyrfti hann að vera til staðar. Engu að síður virtust sumir eiginlega vera að leitast eftir nákvæmlega þeirri upplifan með viðskiptum sínum á þessum markaði. Sem er töluvert ógeðfellt.

18.01.2010 | Lux Mundi
jesuslightswitch
Ég veit ekki alveg með þetta.
18.01.2010 | Minjasafn eftirsjárinnar

Náði ekkert að pósta í dag. Er búinn að vera að skoða síðuna Ugliest Tattoos spjaldanna á milli.

Þetta safn persónulegrar eftirsjár og kárnaðrar stundargleði hefur haldið mér hugfangnum í allan dag.

Þau eru mörg ansi ljót og hræðileg, húðflúrin sem birtast manni á þessari síðu, en eitt hefur vakið hjá mér svo mikla forundran og vangaveltur að ég hætti að skilja mannskepnuna í eitt augnablik. Myndin er slík að ég kann ekki við að birta hana hérna á síðunni. Mér finndist hún draga þessa annars smekklegu síðu niður.

Hvernig fæst þessi niðurstaða? Hvaða hugsanaferli leiðir þetta sköpunarverk af sér? Þessi mynd spyr svo margra spurninga, en svarar því miður fæstum þeirra.

15.01.2010 | Friday!
fridaymovie
14.01.2010 | You're the birthday... boy... or girl!
simpsons20yrs

Simpsons fjölskyldan á opinberlega 20 ára afmæli í dag. Reyndar er hún nær því að vera 23 ára, en hún leit fyrst dagsins ljós í apríl 1987. Aukinheldur var fyrsti þátturinn í fullri lengd sýndur í desember 1989, en látum það liggja milli hluta. Ef Matt Groening segir að þau séu tvítug í dag, þá eru þau tvítug í dag.

Sökum þessa hafa til að mynda BBC heiðrað fjölskylduna með því að birta lista yfir eftirminnilega þætti, og Guardian tiltekið 20 bestu atriði að þeirra mati.

Merkilega nokk er hvergi minnst á mitt eftirlætisatriði í öllum þáttunum, sem ég get horft á aftur og aftur, en það er Worker and Parasite sketsinn úr þættinum um Gabbo.

Hefur fólk einhverja skoðun á þessu?

14.01.2010 | The Usual Suspects
theusualsuspects

Geðveikt! Lögreglan í Vestur-Jórvíkurskíri greiðir fólki £15 fyrir að leika glæpamenn í sakbendingu.

Því miður er ekki um gamaldags line-up að ræða, heldur bara vídjó-atriði.

Samt!

Nú skora ég á Sveinbjörn Þórðarson að skella sér þarna suður eftir og leika gangster.

14.01.2010 | Dino-Shark

Þessi frétt er ástæðan fyrir því að ég ætla aldrei að leggjast til sjósunds við gylltar strendur Suður-Afríku.

"Holy shit. We just saw a gigantic shark eat what looked like a person in front of our house. That shark was huge. Like dinosaur huge."

14.01.2010 | Llíbarkújs
llibarkujs

Það eina sem mér datt í hug þegar ég las þessa frétt á rúv-vefnum, var Klaufabárðarnir.

Maður getur líka einhvernvegin gert sér í hugarlund hvernig týpa það er sem þarf að klifra upp á brettið á vegheflinum til að stjórna björgunaraðgerðinni á eigin bíl.

Athyglisvert líka að hið ágæta fólk á fréttastofu rúv kýs að nota þessa sömu low-res mynd af sjúkrabíl fyrir allar innlendar fréttir sem tengjast slysum á einn eða annan hátt. Sjá t.d. hér.

13.01.2010 | Illaður Halur

Er að fíla þetta nýja look. Spái því að það verði heitt í sumar. Kominn tími til að kjepps fari að láta skína í peccana.

douchebagskjallinn
13.01.2010 | Fyrsta húsnæði

Að reyna að eignast húsnæði á Íslandi er eins og að bíða í ótrúlega langri röð fyrir utan skemmtistað sem rukkar inn. Maður horfir á VIP röðina hlaupa inn og út, og loksins þegar maður sjálfur kemst inn og er búinn að borga aðgangseyri, þá hefur maður ekki efni á bjór, það er verið að loka, og allt fallega fólkið er löngu farið heim.

Stundum er svo fólki hent út.

Ekki það að maður getur alltaf bara farið á Áslák í Mosfellsbæ eða Njálsbúð ef maður vill ekki bíða í röð.

12.01.2010 | Burj Khalifa

Þann 4. janúar var hæsta bygging heims opnuð. Burj Khalifa, eða Kalífa-turninn (gjarnan kallaður Dubai-turninn) er 828m hár og var 5 ár í byggingu.

Turninn er stór ástæða þess að Dubai er nú sligað af skuldum en bygging hans kostaði 1,5 milljað USD (186 milljarða ISK). Þess má reyndar geta í framhaldi að turninn var aðeins hluti af stærra verkefni í miðborg Dubai sem kostar um 20 milljarða USD (2.480 milljarða ISK).

Neðstu 39 hæðirnar af turninum eru innréttaðar af Giorgio Armani og eru með dýrustu fasteignum í heimi. Íburðurinn er alltumlykjandi.

Ég mæli með að fólk smelli á myndina til að skoða stærri útgáfu. Þetta er allsvakalegt mannvirki.

burj khalifa small
Þess má geta til samanburðar að litli turninn til vinstri virðist
vera svona meðal 40 hæða blokk.
Reynið að finna litlu mennina við botn turnsins.
11.01.2010 | Letterheady

Fann þessa snilldar síðu með athyglisverðu og sögulegu bréfsefni.

Á Letterheady má finna bréfsefni frá einstaklingum á borð við Albert Einstein, Adolf Hitler, Johnny Cash ofl. ásamt ákveðnum frægum fyrirtækjum.

jcashletterhead1

Held að það sé málið að koma sér upp einhverju flottu bréfsefni.

11.01.2010 | Real vs. fictional science

Xkcd, kemur hlutunum alltaf svo vel frá sér.

science montage
11.01.2010 | Hvalræði Kristjáns Loftssonar

Í áhugaverðri frétt um útflutning á hvalkjöti frá Íslandi má hæglega draga þær ályktanir að kenningar Kristjáns Loftssonar um gjaldeyrisöflunarmöguleika iðngreinarinnar eru ef til vill full bjartsýnar.

Þar kemur fram að einungis þrjú kíló af hvalkjöti hafi verið flutt út frá Íslandi á tímabilinu janúar-nóvember 2009.

Ég reyndi að finna gögn um þetta á vef Hagstofunnar, en sjáfsagt er þessi flokkur of lítill til þess að um hann sé sérstaklega fjallað í talnagögnum, sem þar eru til reiðu. Þá er einnig rétt að halda því til haga að framsetningu gagna á vefsíðu Hagstofunnar er um margt ábótavant.

Samkvæmt fréttinni mun verðmæti hinna útfluttu afurða nema 5.442 krónum, eða 1.814 krónum á kílóið.

Maður verður því að spyrja sig hvaða annarlegu hvatir liggi að baki herferð Kristjáns gegn hvölum umhverfis landið.

Ekki það að mér þykir hrefnukjöt alveg ómótstæðilega gott og fagna því svosem persónulega að það er fáanlegt á innlendum markaði.

08.01.2010 | Baramac Obama
barackismac
Ég fíla pacman kallinn sem er að éta eplið.
06.01.2010 | Hey Flowchart!
hey jude beatles flow chart
06.01.2010 | Pixel Wars

Svo að við höldum nú aðeins áfram með þetta Star Wars þema, þá finnst mér rétt að benda á frekar geðveika síðu sem ég rakst á.

Joshua Budich á safn af Star Wars leikföngum. En það er ekki nóg fyrir Joshua Budich. Joshua er búinn að gera lítið pixel-icon fyrir hvert einasta Star Wars dót sem hann á.

Alltof klikkað, alltof tímafrekt, en að sama skapi frekar mikið töff.

Frekar þung síða, en gefið þessu séns. Þetta er töff.

05.01.2010 | R2 Reynolds
r2d2smoker

Frekar magnað youtube clip sem ég rakst á. Kemur í ljós að R2D2 er að laumupúkast með að reykja. Og C3PO virðist þarna vera einhverskonar útgáfa af Þorgrími Þráins að banna öllum að reykja.

Maður skilur nú samt eiginlega R2D2 að leyfa sér að laumast í eina og eina. Frekar taugatrekkjandi ábyggilega fyrir litla kallinn að vera alltaf að redda málunum svona fyrir horn.

Þetta vekur samt upp allskyns vangaveltur um mannlegt eðli R2D2. Eru einhverjir bíólógískir vefir í honum sem hann getur eyðilagt með reykingum? Við vitum að Kenny Baker leikur R2D2 og dvelst innra með honum, en á líka að vera dvergur inni í R2D2 skv. sögunni?

...og er þá sá dvergur að reykja í þessarri auglýsingu?

Spurningarnar eru endalausar.

04.01.2010 | Simple Wikipedia

Simple Wikipedia er snilld...

...held ég allavega.

Simple Wikipedia væntanlega wikipedia fyrir "simple-fólk".

Mér fannst eins og ég yrði pínku tregur þegar ég las þessar greinar. Sérstaklega þessa um Deconstruction.

Merkilega óþægilegt að lesa svona einfeldningslegan texta.

04.01.2010 | Ríkisstjórnarmyndanir

Þetta er dálítið athyglisvert. Á vef Stjórnarráðsins má finna ljósmyndir af Ríkisstjórnum Íslands í gegnum tíðina.

Mestmegnis eru þetta nú þungbúnir svarthvítir karlar í dökkum jakkafötum.

Það er reyndar leitt að ekki eru myndir af þeim átta ríkisstjórnum sem sátu milli 1920-41, en kannski voru þær aldrei festar á filmu. (Hér má sjá ríkisstjórnartal.)

Merkilega ljótt þetta borð sem þau sitja við þarna á Bessastöðum. Mætti alveg skipta þessu út við tækifæri.

04.01.2010 | Good times

Nýlegir endurfundir með gömlum kunningjum leiddu til ákveðinnar endurskoðunar á ritstjórnarstefnu þessarar síðu. Raunar var það eitthvað sem hafði vissulega blundað í mér um nokkurt skeið en ég hafði ekki tekið neinum föstum tökum fram að þessu.

Eftir að hafa lesið mig aftur í gegnum árið 2009, hef ég komist að þeirri niðurstöðu að efnistökin eru með eindæmum leiðinleg oft á köflum, og minnir síðan gjarnan á ofstopafullt "eyju-blogg".

Slíkt er aldrei gott.

Það er í sjálfu sér gott og vel, og hverjum manni heilbrigt, að hafa miklar og sterkar skoðanir á hlutunum. Það felur þó ekki í sér að mönnum beri einhver sérstök skylda til að hrópa upp um þessar sömu hugmyndir, og leiðingjarnt að sjá þegar menn fara að reka áróður eða leiðast jafnvel út í hálfgerða eineltistilburði gagnvart einstökum persónum og gerendum.

Því miður sýnist mér ég hafa gerst sekur um flest allt þetta.

Það er miður að stór hluti, ef ekki stærstur hluti, af íslensku content-i sem ratar á netið þessa dagana er þvaður og rifrildi um pólitísk málefni sem menn eru misvel inni í. Þessa dagana er vissulega fullkomið offramboð af skoðunum á pólitískum málefnum, pópúlisma, hverskyns áróðri og múgæsingi.

Sennilega er það allt saman best geymt á eyjunni og blog.is, þar sem Rómverji, Valsól, Balzac og Einn Upplýstur geta skrifað athugsemdir þangað til internetið hættir að rífast.

Skemmtilegt fólk á að halda úti skemmtilegum síðum.


Almennt er ég nú ekki mikið gefinn fyrir áramótaheiti, en ef ætti að strengja eitthvert slíkt, þá yrði það að: a) hætta að lesa skítkasts-blogg og b) hætta að kasta skít sjálfur.

04.01.2010 | 2010

Gleðilegt ár 2010!

© 2010 Arnaldur Grétarsson